
Rauðvín
Domaine Maldant Savigny-Les-Beaune Les Gravains 1er Cru
Frakkland
Kröftugt og kryddað Pinot Noir frá Savigny-les-Beaune, fyrsta þorpinu norðan Beaune. Premier cru-vínekran „Aux Gravains“ gefur þéttbyggt vín með karakter en fínlegu og ávaxtaríku eftirbragði.
Vínberjaafbrigði
Pinot Noir
Áfengishlutfall
13.5%
Land
Frakkland
Passar með
Önd
Deila
Framleiðsla
Domaine Maldant-Pauvelot var stofnað 1693 af Jean Pauvelot og hefur gengið mann fram af manni um aldir. Unnið er af virðingu fyrir jarðvegi og vínvið Búrgúndar, með fínlegri víngerð og þroskun í kjöllurum búsins. Vínin sameina hefð og nútímalega þekkingu og einkennast af breidd, krafti, mýkt, ferskleika og ávaxtaríkum karakter.
Bragðlýsing
Auðugt af dökkum kirsuberjum og hindberjum með blómlegum keim af fjólu og léttum eikartón. Vínið er meðalþungt til þétt, vel byggt og með löngu og fáguðu eftirbragði.


