
Aldeya Garnacha
Spánn
Þétt rúbínrautt Garnacha með safaríkum tónum af dökkum kirsuberjum og hindberjum ásamt kakói og vanillu. Meðalfyllt til þétt, ávaxtaríkt og bragðmikið.
Garnacha
14.5%
Spánn
Pago Ayles
Baunaréttir
Grænmetis réttir
Lambakjöt
Sterkur matur
Solo
Framleiðsla
Garnacha frá Cariñena í Zaragoza, Aragón. Lífrænt ræktað og þroskað í 5 mánuði á franskri eik. Vínið er framleitt af Pago Ayles. Nafnið Aldeya er dregið af arabíska orðinu fyrir þorp. Búgarðurinn Finca Ayles á rætur að rekja til 12. aldar þegar munkar hlúðu fyrst að vínviðnum, og er sagður fæðingarstaður listamannsins Goya. „Pago“ er hæsta gæðaflokkun spænska kerfisins og Pago Ayles er eini búgarðurinn í Aragón sem hefur hlotið hana, einn af aðeins 18 í landinu.
Bragðlýsing
Aldeya Garnacha 2021 sýnir lifandi tóna af kirsuberjum og hindberjum, með snerti af hvítum pipar og blómatónum. Vínið er ferskt og líflegt með góðu jafnvægi í sýru.


