Lupo Nero Bianco Terre Siciliane – Hvítvín, Ítalía
Hvítvín

Lupo Nero Bianco Terre Siciliane

Ítalía

Frískandi hvítvín frá Sikiley með stökkum sítrus, þroskuðu epli, fíngerðum hvítum blómum og vott af möndlu. Létt, þurrt og þægilegt.

Meira um vínið
Vínberjaafbrigði

Catarratto, Grecanico, Inzolia

Áfengishlutfall

12%

Árgangur

2024

Land

Ítalía

Framleiðandi

Lupo Nero

Passar með
  • Fiskur
  • Skelfiskur
  • Fuglakjöt
  • Grænmetis réttir
  • Ostur
  • Pasta
Meira um matarpörun

Fer vel með grilluðum fiski, rækjum, kræklingi og léttum pastaréttum með sjávarfangi. Frískleg sýran hentar líka með ofnsteiktum kjúklingi, salötum í Miðjarðarhafsstíl, grilluðu grænmeti og ferskum ostum. Sérlega gott með pönnusteiktum íslenskum þorski, sítrónu og ferskum kryddjurtum.

Deila

Framleiðsla

Lupo Nero Bianco frá Rocca-fjölskyldunni er ferskt og aðgengilegt hvítvín frá Sikiley. Hlý Miðjarðarhafssólin gefur ríkulegan ávöxt en nálægðin við hafið heldur í ferskleikann. Vínið er blanda af Grecanico, Catarratto og Inzolia, þremur þrúgum sem tengjast sikileyskri víngerð. Það sameinar ferskan sítrus og kjarnaávöxt, fíngerðan blómailm og vott af möndlu. Létt, frískandi og fjölhæft vín og góð kynning á hversdagshvítvínum Suður-Ítalíu.

Bragðlýsing

Fölur sítrónugulur litur með fíngerðum grænum blæ. Í nefi sítrónubörkur, gult epli, hvít blóm og ferskar kryddjurtir ásamt vott af möndlu. Létt og í munni með stökkri , ferskum sítrus og hreinu, frískandi .