
Immortallis Albariño
Spánn
Ferskt, ilmríkt og steinefnakennt Albariño frá Rías Baixas, mótað af gömlum vínvið, áhrifum Atlantshafsins og granítjarðvegi. Þroskun á botnfalli gefur mýkri áferð á meðan náttúruleg sýra heldur vininu lifandi. Hreint og tjáningarríkt hvítvín með björtum ávexti og hressandi seltu í eftirbragði.
Albariño
13%
Spánn
Immortallis
Finger food
Fiskur
Grill
Ostur
Skelfiskur
Sushi
Framleiðsla
Immortallis Albariño kemur frá Rías Baixas á Spáni, heimkynnum Albariño undir áhrifum Atlantshafsins. Vínið er gert úr gömlum vínvið í granít- og flögubergsjarðvegi, þar sem svalt hafloft og mikill munur á hita dags og nætur viðheldur ferskleika og ilmstyrk. Vínekrurnar liggja í um 300 metra hæð sem gefur vininu bæði þroskaðan ávöxt og þétta steinefnakennda undirstöðu. Vínið er þroskað í fjóra mánuði á botnfalli sem gefur áferð og fíngerða dýpt en heldur björtum, sjávartengdum karakter Albariño í forgrunni.
Bragðlýsing
Strágult með grænleitum blæ. Í nefi peru, græn epli, nektarínur, melóna, sítrus og hvít blóm. Í munni stökkt og munnvatnshvetjandi með líflegri sýru, ávalri áferð frá botnfalli og steinefnakenndu, örlítið seltukenndu eftirbragði.


