
Champagne Hostomme, Blanc de Blanc Grand Cru
Frakkland
Þurrt Blanc de Blancs Grand Cru kampavín úr Chardonnay frá bestu ekrum Hostomme-fjölskyldunnar. Fínlegur ilmur og fágað, hressandi bragð.
Chardonnay
12.5%
Frakkland
Fiskur
Ostur
Finger food
Solo
Framleiðsla
M. Hostomme „Origine“ Blanc de Blancs Grand Cru er þurrt, hvítt kampavín úr Chardonnay sem valið er af bestu ekrum Hostomme-fjölskyldunnar. Kældar þrúgur eru pressaðar og gerjaðar í stáltönkum og vínið þroskast síðan á botnfalli í að minnsta kosti þrjú ár. M. Hostomme er eitt elsta vínhús Champagne-héraðs með rætur aftur til 16. aldar og er nú rekið af Laurent og Christel Hostomme, sem framleiða glæsileg vín úr Chardonnay, Pinot Meunier og Pinot Noir. Fínlegt og fágað kampavín sem hentar vel sem fordrykkur og með fiski, sjávarfangi, léttum réttum og ávöxtum.
Bragðlýsing
Tært freyðivín með ilm og bragði af sítrónu og grænu epli ásamt tónum af nýbökuðu brauði og heslihnetum. Fínlegar perlur og langt, fágað eftirbragð.


